Hilton Reykjavík Nordica býður uppá nokkar gerðir af herbergjum, Hilton Guest Room, Executive Room og svítur. Öll PLUS herbergi eru á framhlið hótelsins og snúa að Esjunni. Öll herbergi eru björt og rúmgóð, parketlögð og innréttuð í nútímalegum stíl. Þeir gestir sem gista á 9. hæð í Executive herbergjum okkar fá aðgang að Nordica Spa og Executive Lounge þar sem tilkomumikið útsýni er yfir sundin.
Hilton Reykjavik Nordica er reyklaust hótel en gestir hafa aðgang að sérstökum reyksvæðum utandyra.
Þráðlaust net og úrvals vinnuaðstaða ásamt aðgangi að Executive Lounge og Nordica Spa.
Fyrir þá sem vilja hámarks þægindi og lúxus. Rúmgóðar svítur með frábæru útsýni að Esjunni og yfir flóann.
MEIRA
Tilkomumikið útsýni yfir sundin og léttar veitingar yfir daginn ásamt þráðlausum netaðgangi.
MEIRA