Það sem gerist á Hilton fer ekki lengra
Fagleg úttekt okkar á ánægju viðskiptavina okkar segir okkur að á Hilton er sannarlega gott að vera. Njóttu lífsins með þeim sem þér þykir vænt um á Hilton Reykjavík Nordica. Hjá okkur upplifið þið alþjóðlega stemningu, notalega þjónustu og framúrskarandi veitingar og gistingu.
Þú þarft ekki að fara út úr bænum eða til útlanda til að njóta lífsins. Sparaðu þér dýrar bílferðir eða langar flugferðir, njóttu lífsins þegar í stað hjá okkur á Hilton Reykjavik Nordica.
Kynntu þér okkar frábæru sérsniðnu tilboðspakka fyrir tvo á sannkölluðu sparnaðarverði.
30% afsláttur af pakkaverði ef gist er í júlí og ágúst 2010.
40% afsláttur af pakkaverði ef gist er í september, október, nóvember og desember 2010.

SparipakkinnSparipakkinn er sniðinn að þeim sem vilja láta dekra við sig hæfilega mikið. Frábær fyrir þá sem þurfa ekki allan lúxusinn en vilja samt komast frá og virkilega láta sér líða vel. Sparipakkinn gefur alveg tilefni fyrir sparifötin, enda spörum við hvergi þegar það kemur að þér, jafnvel þó þú sparir.
Þó að Sparipakkinn innihaldi ódýrusta gistimögleikann
“Hilton Guest Room” þá er það nóg fyrir flesta. “Hilton Guest Room” eru mjög rúmgóð og notalega innréttuð herbergi þar sem þig mun ekkert skorta. Gott útsýni, internettenging, sjónvarp og ekki síst stór og þægileg rúm sem virkilega bjóða þig velkomin.
Innifalinn er glæsilegur morgunmatur að hætti VOX frá kl: 7:00 -10:00. Hvort sem þú vaknar 7:00 eða 10:00 þá getur þú verið viss um að það bíði þín morgunverðarhlaðborð að hætti VOX. Hér er geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi og ef það er ekki á borðinu þá útbýr kokkurinn það fyrir þig á augabragði. Morgunverðurinn er of talin ein mikilvægasta máltíð dagsins, við á VOX tökum svo sannarlega undir það. Hilton morgunverður fyrir tvo á VOX er innifalinn í Sparipakkanum.
Ath. Uppfærsla í Plús herbergi sem snýr að Esjunni kostar kr. 3.000.-
DekurpakkinnHér er allt sem tilheyrir Sparipakkanum innifalið og meira til. Dekurpakkinn er fyrir þá sem vilja enn meira dekur og afslöppun í okkar frábæru húsakynnum. Í Dekurpakkanum er gistingin uppfærð upp í hið glæsilega „Hilton Executive Room“ á 9. hæð. Að auki bjóðum við þér aðgang að okkar glæsilega „Hilton Executive Lounge“ á 8. hæð, en um er að ræða eina
glæsilegustu setustofu í borginni. Njóttu lífins með einstakt útsýni yfir Esjuna á meðan þú gæðir þér á ferskum ávöxtum og öðru léttum veitingum. Þar að auki fylgir Dekurpakkanum frír aðgangur í Nordica Spa.
Athugið að herbergin í þessum tilboðspakka snúa í suðurátt, hægt er að fá útsýni í norðurátt (Esju megin) fyrir 3.000 kr. aukalega.
Tillaga að dagskrá:
High Tea á VOX - Frá kl: 14-18
Taktu það rólega í alþjóðlegu umhverfi okkar yfir góðum bolla af kaffi eða prófaðu alvöru breskt te. Með drykknum nýtur þú svo glæsilegra veitinga sem bornar eru fram á þriggja hæða bakka; safaríkir samlokubitar, baquette, kökur, ávextir og annað góðgæti.
High Tea veitingar eru innifaldar í Dekurpakkanum.
Eftir High Tea er tilvalið að taka sér göngutúr um Laugardalinn eða bara kíkja upp á hótel herbergi og ná sér í smá miðdegislúr. Þú getur líka látið dekra við sig á Nordica Spa á 2.hæð en þar er bæði hægt að slappa af í pottum, fara í nudd eða taka ærlega á því í æfingartækjunum. Um kvöldmatarleytið er tilvalið að prófa Norræna matseld á heimsmælikvarða á VOX Restaurant, en staðurinn er þekktur meðal fagmanna sem einn sá allra besti í Skandianvíu.. Þitt er valið, prófaðu að vera útlendingur á Íslandi, en við mælum samt með því að þú skiljir skærgula stakkinn eftir heima með gönguskónum!
Þú sefur vel á Hilton Reykjavik Nordica
Á 9. hæð eru „Hilton Executive Room“ þú gistir þar þegar þú ert í Dekurpakkanum. Hér herbergin innréttuð í rómantískum stíl með dökkum við. Á 8. hæð er hin margrómaða setustofa „Hilton Executive Lounge“ þar er tilvalið að slappa af í frábæru útsýni og njóta léttra veitinga síðar um kvöldið.
Byrjaðu daginn á morgunmat hjá VOX
Morgunverður að hætti VOX - Frá kl: 7:00-10:00
Hvort sem þú vaknar 7:00 eða 10:00 þá getur þú verið viss um að það bíði þín morgunverðarhlaðborð að hætti VOX. Hér er geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi og ef það er ekki á borðinu þá útbýr kokkurinn það fyrir þig á augabragði. Morgunverðurinn er talin mikilvægasta máltíð dagsins, við erum sannfærð um það.
Hilton morgunverður fyrir tvo á VOX er innifalinn í Dekurpakkanum.
Ath. Uppfærsla í Plús herbergi sem snýr að Esjunni kostar kr. 3.000.-
Skilmálar