Bóka núna

My Travel Dates Are: Fixed | Flexible

VOX

VOX veitingastaðurinn er glæsilegur veitingastaður þar sem norrænt hráefti nýtur sín til fulls og þá sérstaklega það íslenska. Eldhúsið á VOX er hið eina í Rekjavík sem fylgir Yfirlýsingu um nýja, norræna matargerðarlist af sannfæringu. Áhersla er lögð á nærtækt hráefni og endurnýjun hefða, en kraumandi metnaður ljær réttunum heimsborgarlegt yfirbragð. Við ræktum beint samband við bændur, fiskimenn, skotveiðimenn og berja- og sveppatínslufólk í villtri, íslenskri náttúru. Hráefnið er því alltaf náttúrulega ferskt. Útfærslan er frumleg og þjónustan fagleg. Við erum einfaldlega fólk sem kann að taka á móti fólki.

Á VOX Bistro er í boði úrval litríkra rétta. Þar er opið frá morgni til kvölds og áhersla lögð á fallegar máltíðir á viðráðanlegu verði. Nútímalega hádegishlaðborðið okkar hefur vakið athygli og VOX Bistro brunchinn á sunnudögum er frægur um alla borg. Borð fyrir, einn, tvo eða heilan hóp. Hér er allt sem þarf fyrir notalega kvöldstund eða hressandi hádegisfund.

Smelltu hér til að opna vef VOX.

 

Barinn í móttökunni.

VOX Bistro.

VOX Restaurant.

Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, 108 | Sími: 444-5000